Um kúrekann

Kúrekinn.is var stofnað á árinu 2024 af Elmari Þór Magnússyni en er í dag rekinn undir félaginu Fagrabjarg ehf. sem var stofnað á árinu 2025. Hann hefur frá unga aldri haft mikinn áhuga á að smíða, m.a. úr málmum, og verið ófeiminn við að prófa sig áfram með sínar hugmyndir. Á síðustu árum hefur áhugi hans á buggy bílum og að ferðast á slíkum bíl aukist mikið og á hann í dag fjögurra manna Can-Am X3.
Þegar hann ætlaði að bæta við aukahlutum í bílinn sinn s.s. framrúðu ákvað hann að prófa að búa hana til sjálfur. Það heppnaðist mjög vel þannig að vinir vildu kaupa af honum framrúðu. Það vatt upp á sig og í framhaldinu fór Elmar að hanna og smíða hliðarlokanir í X3 þar sem hann hafði áhuga á að loka sínum bíl. Síðan þá hefur hann hannað og framleitt framrúður í Segway og Polaris bíla sem og aðrar tegundir af Can-am bíla.
Öll framleiðsla fer fram hér á Íslandi.
Á þessari síðu er hægt að panta þessar vörur en sífellt er verið að hanna fleiri gerðir af rúðum og verða þær settar hér inn jafnóðum.